Af hverju Ríkismennt?
Til þess að takast á við breytingar og þróun þá er menntun ein af þeim leiðum sem vænlegust er til árangurs. Aukin menntun hefur það í för með sér að veita einstaklingum meiri lífsfyllingu, eflir sjálfstæði og bætir sjálfsmynd og auðveldar leiðina að virkri þátttöku í samfélaginu og þróun þess ásamt því að gera viðkomandi betur í stakk búinn til þess að takast á við viðfangsefni hins daglega lífs í hinu sífellt meira krefjandi nútímasamfélagi.